Vörumerki
Vöruflokkar
Húðtýpur
Undirflokkar
Uppselt
Nabla
Angel Aura Bright
8.490 kr.
Lýsing

Angel Aura Bright er ljómandi húðkrem með margþættum geislandi, fyllandi og rakagefandi áhrifum.

Létt áferð þess, auðguð með ofurfínum örperlum, gefur húðinni fágaðan „ljóma“ sem hæfir öllum húðgerðum, skilur hana eftir silkimjúka og hjúpaða tærum glansi.

Blandan af perlunum er fullkomið jafnvægi og hlutlaust og aðlagast náttúrulega öllum undirtónum.

Angel Aura Bright er fullkomin brú milli förðunar og húðumhirðu: það dregur strax fram ljóma húðarinnar og þökk sé háu hlutfalli virkra innihaldsefna, vinnur það með tímanum að því að bæta húðina sýnilega dag frá degi, með virkni sem hefur verið prófuð af óháðum rannsóknarstofum

Kostir:
• Fágaður og tafarlaus ljómi
• Fjölhæfur litur með örperlum sem hentar öllum húðtónum
• Rakagefandi en ekki klístrað. Hentar öllum húðgerðum
• Ríkt af virkum húðumhirðuefnum, klínískt prófað með árangursríkum niðurstöðum
• Fyllandi og lyftandi áhrif
• Sléttir húðina og lengir endingu farða
• Mildur ilmur af hvítum blómum

Hentar:

Hentar öllum húðgerðum

Notkun:

• Sem fljótandi ljómi: fyrir mjúkan og dreifðan ljóma, bankaðu litlu magni á kinnbein, á svæðið fyrir ofan efri vör (Cupid’s bow) og á nefbrún. Ofurfínar perlur varpa ljósi án þess að draga fram áferð húðarinnar.

• Sem grunnur (primer) berðu á sem fyrsta skref í grunnförðun. Angel Aura Bright sléttir húðina, auðveldar ásetningu farða og lengir endingu hans. Létt áferðin blandast fullkomlega við húðina.

• Sem ljómandi grunnur á bera húð: eftir húðumhirðu, berðu á allt andlitið til að ná fram ljómandi, fersku og jöfnu útliti. Einnig tilvalið á háls og bringusvæði fyrir jafnan og náttúrulegan ljóma.

• Blandað við farða: bættu nokkrum dropum af Angel Aura Bright við uppáhalds farðann þinn fyrir geislandi áferð og heilbrigðara, sléttara útlit húðarinnar.

• Fagráð: notaðu með Angel Aura Bronze og Freckle Maker fyrir ofurnáttúrulegt, sólkysst og ljómandi útlit – einnig fullkomið fyrir „no-makeup makeup“ daga

Gott að vita:

Cruelty Free

Vegan

Framleitt á Ítalíu

30 ml

Sími
537-1877
Tölvupóstur
nola@nola.is
Heimilisfang
Ármúli 38
Komdu í Nola klúbbinn
Opnunartími
Þriðjudag - föstudags: 11-17
Laugardaga: 11-16
🍪
Við notum vafrakökur til að safna og greina upplýsingar um notkun, til að geta notað samfélagsmiðlalausnir og til að bæta þjónustuna okkar.
Hafna
Samþykkja